Orlofssjóður

Senda fyrirspurn

Hvað gerist ef orlofspunktar klárast?

Þeir sem eiga minna en mínus 48 orlofspunkta geta ekki bókað sig á orlofsvefnum.


Fær félagsmaður endurgreitt ef hann kemst ekki í orlofshús vegna eigin veikinda, veikinda barna eða maka?

Ef innan við 14 dagar eru í upphaf leigutíma fær félagsmaður samstundis endurgreitt 75% af leiguverðinu og það sem á vantar (25%) um leið og læknisvottorð berst. Ef innan við 48 klst. eru í upphaf leigutíma fær félagsmaður samstundis greitt 50% af leiguverðinu og það sem á vantar (50%) um leið og læknisvottorð berst.


Fær félagsmaður endurgreitt ef hann kemst ekki í orlofshús vegna óveðurs?

Ef veður eða aðrar óviðráðanlegar ytri aðstæður svo sem ófærð, aðvaranir lögreglu eða veðurstofu koma í veg fyrir orlofsdvöl endurgreiðir sjóðurinn 80% leigugjaldsins og fellir niður punkta. Leiga er aldrei endurgreidd berist tilkynning um forföll til skrifstofu eftir að leigutími hefst.


Hvað verður um hluti sem gleymast í orlofshúsum?

Hafa skal samband við umsjónarmann orlofshúsanna. Upplýsingar um síma þeirra er að finna á leigusamningi.


Hvað gerist ef félagsmaður hættir við að fara í orlofshús sem hann hefur þegar leigt?

Skilagjald og breytingagjald er alltaf kr. 1.500. Ef félagsmaður hættir við leigu þegar innan við tvær vikur eru í upphaf leigu fær hann 75% af leiguupphæðinni endurgreidd. Ef félagsmaður hættir við leigu þegar innan við tveir sólarhringar eru til upphafs leigutímans er 50% af leiguupphæðinni endurgreidd. Þegar hætt er við leigu skerðast orlofspunktar ekkert og félagsmaður endurheimtir þá orlofspunkta sem notaðir voru. Ekki er hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að leigutíminn er hafinn.


Af hverjum er rekstur Orlofssjóðs greiddur?

Allur rekstur Orlofssjóðs er greiddur af orlofsgjaldi vinnuveitanda til Orlofssjóðs en er ekki tekinn af félagsgjöldum félagsmanna. Framlag launagreiðanda er 0.25% af heildarlaunum félagsmanna nema fyrir Félag leikskólakennara 0.5% af heildarlaunum.


Er hægt að skila hótelávísunum?

Já, hægt er að skila hótelávísunum og fá endurgreitt 80% af verði þeirra á gildistíma. Ekki er hægt að fá hótelávísanir endurgreiddar eftir að gildistími þeirra er útrunninn.


Hvað eru hótelávísanir?

Orlofssjóður KÍ býður upp á niðurgreidda gistingu allan ársins hring á Fosshótelum, Hótel Keflavík, KEA hótelunum (KEA, og Norðurland á Akureyri) og Arctic Comfort hótel í Reykjavík. Á veturna er hægt að kaupa hótelávísun á Icelandair hótelunum. Yfir sumartímann eru hótelávísanir á Edduhótelin einnig í boði. Þessi gisting er niðurgreidd af sjóðnum og eru teknir 3 orlofspunktar fyrir hverja hótelávísun.


Hvað fær félagsmaður marga orlofspunkta á ári?

Félagsmenn fá 24 punkta á ári óháð starfshlutfalli. Þeir félagsmenn sem eiga flesta punkta eru með 624 punkta.


Hvað er punktastýrð úthlutun?

Punktastýrð úthlutun þýðir að þeir sem eru með flesta punkta geta fyrstir bókað sumarhús á vorin. Vorið 2013 geta þeir sem eru með 300+ punkta byrjað að bóka vikuleigu 2. apríl. Sjá töflu fyrir neðan.

Punktastýring - sumarleiga
Vikuleiga og flakkari:

2. apríl kl. 18:00 geta þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri pantað.
4. apríl kl. 18:00 geta þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri pantað.
5. apríl kl. 18:00 geta þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri pantað.
9. apríl verða allar lausar vikur settar á orlofsvefinn og þá geta þeir pantað sem eiga enga punkta að -48 punktum.

1. júní verða öll sumarhús sem ekki gengu í vikuútleigu leigð sem flakkarahús.


Fyrir hvaða tímabil þarf að senda inn umsóknir fyrir orlofshús?

Allar bókanir fara nú rafrænt fram á Mínum síðum. Vorið 2008 var í fyrsta skipti tekið upp punktastýrt úthlutunarkerfi.


Sendir Orlofssjóður kvittun og samning heim eftir að bókað hefur verið á vefnum?

Nei, eftir að bókað hefur verið þarf að prenta út leigusamning sem kemur á netfang leigutaka og taka með sér þegar farið er í húsið. Alltaf er hægt að nálgast leigusamninga á Mínum síðum.


Hvernig er hægt að komast á bókunarvefinn?

Það þarf að skrá sig inn á Mínar síður (tengill á ki.is) til þess að komast inn á bókunarvef Orlofssjóðs.


Hvert eru lyklar að orlofshúsunum á Flúðum sóttir?

Lyklar að orlofshúsunum í Ásabyggð, Heiðarbyggð og Kjarnaskógi eru í lyklaskáp utan á húsinu. Skápurinn er lokaður með talnahengilás og lykilnúmerið er á leigusamningi.


Stendur eftirlaunaþegum til boða að leigja orlofshús?

Já, eftirlaunaþegum stendur til boða að leigja orlofshús. Yfir vetrartímann kostar nóttin 2.500 kr. í miðri viku í Ásabyggð og Heiðarbyggð en sömu verð gilda fyrir alla um helgar. Verðið gildir frá mánudegi til föstudags.








Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli